|
Af rannsóknarverkum tengdum Snorrastofu má nefna Reykholtsverkefnið, sem er þverfaglegt, alþjóðlegt miðaldarannsóknarverkefni á sviði bókmennta, fornleifafræði, landafræði og sagnfræði.
Reykholt og evrópsk ritmenning er annað miðaldarannsóknarverkefni, tengt Snorrastofu. Það var samnorrænt, fimm ára verkefni (2002-2006) styrkt af NorFa og tengdist það Reykholtsverkefninu. Árlega voru haldin málþing í Snorrastofu um valið efni.
Fornleifarannsóknir hafa einnig verið stundaðar í Reykholti undanfarin ár. Árin 1988-1989 stóð Þjóðminjasafn Íslands að uppgreftri og fornleifarannsóknum á fornum bæjarstæðum í Reykholti. Þær rannsóknir héldu áfram 1998-2007og tengjast þær ennfremur Reykholtsverkefninu.
Seljarannsókn í Borgarfirði er þverfaglegt alþjóðlegt verkefni um sel Reykholts í Borgarfirði. Megináhersla er lögð á sel Reykholts í tíð Snorra Sturlusonar. Kannað verður skipulag landnýtingar, miðað við þær forsendur sem náttúra og landslag bauð upp á, og leitast við að skilja mikilvægi og hlutverk seljabúskapar fyrir Reykholt sem kirkjumiðstöð og valdamiðstöð einkum í tíð Snorra.
Fagurfræði var sömuleiðis eitt af verkefnum Snorrastofu. Í maí 2003 var haldið á vegum Snorrastofu fyrsta alþjóðlega málþingið um fagurfræði á Íslandi, í samvinnu við Listaháskóla Íslands, Hugvísindastofnun HÍ og Nýlistasafnið.
Námskeiðahald er einnig á vegum Snorrastofu. Þar má meðal annars nefna þverfaglegt námskeið í menningarfræðum í samvinnu við ReykjarvíkurAkademíuna og Viðskiptaháskólann á Bifröst haustið 2003 og 2004 og opið námskeið um íslenskar fornbókmenntir í samvinnu við Landnámssetur og Símenntunarmiðstöð Vesturlands á umliðnum árum. Námskeið árið 2006-2007 fjallaði um konur á miðöldum.
Síðast en ekki síst kemur Snorrastofa að margþættri útgáfu. |